
Fagþing nautgriparæktarinnar
14.03.2022
Fagþing nautgriparæktarinnar 2022 verður með breyttu sniði í ár. Í stað staðarfundar verður um að ræða röð stuttra fræðsluerinda á Teams í nokkrar vikur. Fundirnir verða á mánudögum frá kl. 12.00-12.30 utan að fyrsti fundurinn verður þriðjudaginn 15. mars.
Dagskráin er eftirfarandi:
15. mars, kl. 12.00 : Innleiðing nýrra lífsýnamerkja í nautgriparækt - Guðmundur Jóhannesson, RML.
21. mars: Bútækninýjungar með áherslu á nýtingu tilbúins áburðar og búfjáráburðar – Sigtryggur Veigar Herbertsson, RML
28. mars: Rekstrarafkoma nautgriparæktarinnar 2017-2020 – horfur 2022-2023 – Runólfur Sigursveinsson, RML
4. apríl: Nýtt kynbótamat fyrir frjósemi og endingu – Þórdís Þórarinsdóttir, RML
11. apríl: Áhrif umhverfis á útskilnað niturs á kúamjólk – Guðrún Björg Egilsdóttir, BÍ
Páskafrí
25. apríl: Kölkun jarðvegs og nýting mismunandi hráefna til þess með áherslu á innlend hráefni - Snorri Þorsteinsson, RML
2. maí: Árif sláttutíma á uppskeru og endingu eftirsóttra túngrasa fyrir kúabú – Þóroddur Sveinsson, LbhÍ
Hlekkir fyrir fundina verða settir inn á heimasíðu RML jafnóðum og þeir eru tilbúnir.