Beint í efni

Eyðublöð vegna kvótaviðskipta komin á heimasíðu MAST

02.11.2010

Matvælastofnun hefur nú sett eyðublöð vegna kvótaviðskipta á heimasíðu sína og er þau að finna hér. Þeir sem hyggja á viðskipti á kvótamarkaðnum 1. desember n.k. eru góðfúslega minntir á að senda þau til MAST fyrir þann 25. nóvember n.k. en þann dag skulu þau hafa borist stofnuninni. Leiðbeiningar varðandi

viðskiptin er einnig að finna á heimasíðunni. Þeir sem hafa hug á að eiga viðskipti með greiðslumark eru hvattir til að kynna sér þær.