Evrópskir kúabændur sjá fram á endalok kvótakerfisins – verðhrun á kvótamarkaði
11.11.2007
Verð á mjólkurkvóta í Þýskalandi og Danmörku snarféll á dögunum þegar uppboðsmarkaður með kvóta var haldinn í þessum löndum.
Í Þýskalandi var verðið á nóvembermarkaði það lægsta nokkru sinni, 30,93 kr (35 evrusent) pr. kg mjólkur, þrátt fyrir að mjólkurverð til bænda sé í sögulegu hámarki. Dairy Industry Newsletter metur stöðuna þannig að með þessu séu þýskir bændur að senda skýrt merki um að þeir sjái endalok kvótakerfisins fyrir sér árið 2015.
Í Danmörku er sömu sögu að segja, kvótaverð þar féll niður í 33,58 kr (38 evrusent) á kg, það lægsta í fimm ár. 23 þúsund tonn skiptu um eigendur, það er minnsta magn í 10 ára sögu kvótamarkaðar þar í landi. Kauptilboð bárust í 35 þúsund tonn en sölutilboð vegna 104 þúsund tonna. Kvótamarkaður var síðast haldinn í ágústmánuði og þá var verð í sögulegu hámarki, tæplega 55 krónur á kg. Svo lágt verð í dag er vegna kvótaaukningar í apríl n.k. og vegna fyrirsjáanlegra endaloka kvótakerfisins um miðjan næsta áratug.