
Er þitt bú öruggur og góður vinnustaður?
03.08.2017
Bændasamtökin hafa í samvinnu við nokkur búnaðarsambönd starfrækt vinnuverndarverkefnið „Búum vel”. Markmið þess er að bæta öryggis- og vinnuverndarmenningu í sveitum, fækka slysum í landbúnaði og stuðla að góðu vinnuumhverfi og bættri ásýnd bæja. Starfið hefur meðal annars falist í heimsóknum til bænda, fræðslu og fundahöldum.
Fræðslubæklingur um öryggi og vinnuvernd í landbúnaði er aðgengilegur á vefnum en hann var jafnframt sendur til allra lögbýla á landinu í janúar 2016. Sótt var í smiðju Norðmanna sem hafa rekið árangursríkt vinnuverndarstarf um árabil. Bæklingurinn er þýddur úr norsku og staðfærður með góðfúslegu leyfi Norðmanna.
Framleiðnisjóður og Vátryggingafélag Íslands hafa stutt dyggilega við vinnuverndarstarf bænda.
Upplýsingar um vinnuverndarstarfið og heimsóknir til bænda eru veittar í netfangið tb hjá bondi.is
Sjá fræðslubækling - pdf