
Enn lækkar meðalverð á greiðslumarki mjólkur
22.01.2009
Þann 1. febrúar n.k. verða staðfest viðskipti með 174.435 lítra greiðslumarks. Alls eru viðskipti frá upphafi verðlagsársins þá orðin 1.252.455 lítrar sem er 60% af því sem selt hafði verið á sama tíma í fyrra. Meðalverð síðustu 500 þús. lítra er nú 221,14 kr og hefur lækkað um 27,3% frá meðalverði við upphaf verðlagsársins.
Töflu um verð- og viðskiptaþróun greiðslumarks í mjólk má sjá með því að smella hér.
/EB