Beint í efni

Enn hækka dýralyf – nú um 12% milli mánaða

29.04.2008

Verðskrá dýralyfja barst frá Lyfjagreiðslunefnd í morgun og gildir hún fyrir maímánuð. Almenn hækkun dýralyfja milli apríl og maí er 12% og nemur hækkunin frá því í janúar um og yfir 30%, sem er langt umfram það sem gengisþróun gefur tilefni til. Veiking gengis frá áramótum er rúmlega 20% en undanfarinn mánuð hefur krónan styrkst um 6%. Ætla má því að lyfjainnflytjendur séu að hækka framlegð sína umtalsvert og notfæra sér óstöðugt ástand í gjaldeyrismálum til þess.