Beint í efni

Eldum íslenskt

09.10.2009

Bændur hafa slegist í hóp með þekktustu matreiðslumönnum landsins við gerð matreiðsluþáttanna „Eldum íslenskt“. Sýningar eru á vef Morgunblaðsins og á sjónvarpsstöðinni ÍNN. Með þáttunum vilja bændur hvetja neytendur til þess að kaupa íslenskar búvörur og læra í leiðinni hefðbundnar og nýstárlegar eldunaraðferðir af kunnáttumönnum.

Sjá uppskriftir og upptökur á vef mbl.is

 Íslensk kjötsúpa
1. þáttur - Kjötsúpa
 Alvöru nautasteik
2. þáttur - Nautakjöt
 Sallat á fjölbreytta vísu
3. þáttur - Grænmeti
 Alíslensk eggjakaka
4. þáttur - Egg
 Seðjandi svínasíða
5. þáttur - Svínasíða
 Heilsteiktur lambaskrokkur
6. þáttur - Heilgrillað lamb
 
7. þáttur - Lambakótilettur
 
8. þáttur - Kjúklingur
 
9. þáttur - Grænmetissúpa
 
10. þáttur - Lax
 
11. þáttur - Hangikjöt
 
12. þáttur - Hrossalundir
 
13. þáttur - Svínakótilettur
 
14. þáttur- Nautakjöt
 
15. þáttur - Bygg og grænmeti
 
16. þáttur - Lambaskankar
 
17. þáttur - Kjúklingur
 
18. þáttur - Hrossakjöt
 
19. þáttur - Svínakjöt
                                                                        
20. þáttur - Nautakjöt
 

Í þáttunum er höfuðáhersla lögð á íslenskt hráefni úr sveitinni og rammíslenskar eldunaraðferðir. Það er meistarakokkurinn Bjarni G. Kristinsson, yfirmatreiðslumeistari á Hótel Sögu, sem stjórnar þáttunum en þeir eru unnir í nánu samstarfi við Bændasamtökin og flestöll búgreinafélög. Þættirnir verða blanda af fræðslu og matreiðslu og bæði vísað í hefðir og nýtísku aðferðir. Meðal kokka sem koma við sögu eru þau Gunnar Karl á Dilli, Þráinn Freyr á Grillinu, Jóhannes á Vox og Hrefna Sætran á Fiskmarkaðnum auk þaulreyndra manna úr Hótel- og veitingaskólanum. Farið verður í heimsókn í sveitina og spjallað við bændur um framleiðsluna auk þess sem kennd verða undirstöðuatriði við meðhöndlun ýmissa búvara, s.s. úrbeining kjöts og geymsla grænmetis. Markmiðið er að fjalla um hefðbundinn íslenskan heimilismat og sýna fram á þau ótvíræðu gæði sem íslensk búvöruframleiðsla býr yfir.

Þættirnir er sýndir vikulega fram á haust á mbl.is og á sjónvarpsstöðinni ÍNN auk þess að birtast á vefsíðum búgreinafélaganna þegar tímar líða. Þeir eru hver um sig um 20 mínútna langir og verða alls 20 talsins. Styrktaraðilar þáttanna eru Félag kjúklingabænda, Samband garðyrkjubænda, Félag hrossabænda, Landssamtök sauðfjárbænda, Landssamband kúabænda, Félag eggjaframleiðenda, Svínaræktarfélag Íslands, Félag ferðaþjónustubænda, Beint frá býli, Hótel Saga og Bændasamtökin.