Ef kýrnar mættu ráða: úti á nóttunni!
14.05.2016
Það eru til æði margar áhugaverðar rannsóknir á atferli kúa og ein þeirra er rannsókn kanadískra vísindamanna á beitarhegðun mjólkurkúa. Í Kanada hafa verið gerðar margar rannsóknir á því hvernig gripir hegða sér og eru vísindamenn þar framarlega í því að meta hve mikið kýr eru tilbúnar að vinna mikið fyrri ákveðnum hlutum og með því er metið hve mikils virði fyrir kýrnar viðkomandi tilboð er. Þetta er t.d. gert með því að setja upp margskonar hömlur á leið þeirra frá einum stað til annars og svo er fylgst með því hve lengi þær standa í því að fara um t.d. erfiða leið að áfangastað sínum. Sé áhuginn takmarkaður og leiðin erfið, þá standa kýrnar ekki í því að fara af stað en sé vilji þeirra mikill, þá láta þær sig það hafa að vinna fyrir hlutunum. T.d. hafa þessir vísindamenn sýnt fram á að kýr vilja gjarnan komast út úr fjósum sínum og eru tilbúnar að ýta upp þungum hliðum til þess eins að fara út.
Í áhugaverðri rannsókn, sem reyndar var gerð fyrir 7 árum síðan og greint er frá í Journal of Dairy Science, fékk hópur kúa að velja um margskonar lausnir við hýsingu og gátu valið um að vera í fjósi, á beit eða hvar sem er og var fylgst með hegðun þeirra. Í ljós kom að kýrnar vildu helst vera úti á nóttunni, þegar svalast var í veðri en inni í fjósi þegar sólin skein og hlýtt var úti. Þá snarminnkaði beitin þegar rigndi. Samandregið sýna niðurstöðurnar fyrst og fremst að ef kýrnar mættu sjálfar ráða þá væri alltaf opið út á tún og þeim gefið val um hvar þær eru á hverjum tíma en sé það ekki í boði, þá ætti fyrst og fremst að gefa þeim aðgengi að beit á nóttunni.
Vefurinn verður næst uppfærður á þriðjudaginn kemur/SS.