Um BÍ
Búgreinadeildir
Málaflokkar
Til baka
Um Alifuglabændur
Upplýsingar
Kolefnisspor
Til baka
Til baka
Um Hross BÍ
Fræðsla
FHB
Til baka
Um NautBÍ
Upplýsingar
LK
Til baka
Sauðfjárbændur
Upplýsingar
Til baka
Starfið
Stjórnsýsla
Til baka

D-vítamínbætt léttmjólk

22.02.2012

Á næstu dögum mun MS markaðssetja D-vítamínbætta léttmjólk. Þetta er gert skv. ráðleggingum Embættis landlæknis og rannsóknastofu í næringarfræði við HÍ og Landspítala, en D-vítamínneysla landsmanna er talsvert undir ráðleggingum.

 

D-vítamín er hálfgert vandræðavítamín fyrir þá sem búa á norðurslóðum. Það er myndað í líkamanum með hjálp sólarljóssins en þegar sólar nýtur ekki við er mikilvægt að fá það úr fæði. En þá er úr vöndu að ráða þar sem afar fá matvæli innihalda D-vítamín frá náttúrunnar hendi, þar í raun aðeins um að ræða lýsi og feitan fisk.

 

D-vítamínneysla ungmenna er sérstaklega lág. Í nýlegri rannsókn á mataræði 15 ára unglinga á vegum rannsóknastofu í næringarfræði við HÍ og Landspítala kemur í ljós að innan við 5% stúlkna ná ráðlögðum dagskammti af D-vítamíni og innan við 10% drengja. Þegar litið er til þess að á yngri árum er beinmyndun í hámarki og þörf fyrir D-vítamín sérstaklega mikil þá er ljóst að bregðast þarf við. Það gerir MS með D-vítamínbættu léttmjólkinni, en þar fá neytendur bæði kalk og D-vítamín sem nauðsynleg eru fyrir vöxt og viðhald beina. Fyrir í vöruvali MS af D-vítamínbættum vörum eru Fjörmjólk, Stoðmjólk, Smjörvi og Létt og laggott/SS-fréttatilkynning.