Draga úr fituinnihaldi mjólkur
14.10.2015
Í hinum harða heimi mjólkurframleiðslunnar leita nú afurðafélög víða um heim að lausnum til þess að mæta lágu afurðaverði úti á markaðinum. Ein lausnin er að fækka verðefnum mjólkurinnar án verðbreytinga á mjólkinni! Arla Foods hefur einmitt farið þá leið með sk. Minimjólk sem er sú gerð drykkjarmjólkur sem félagið selur lang mest af. Í dag er Minimjólk með 0,5% fitu en um mánaðarmótin mun Minimjólk innihalda 0,4% fitu. Fyrir vikið getur félagið víst sparað 200 tonn af fitu á ári, sem nýta má þá í annað.
Í tilkynningu frá Arla segir að bragðið mun ekki breytast og að neytendur muni því ekki merkja muninn í raun. Auðvitað segir í fréttatilkynningu Arla að aðgerðin geri það að verkum að töluvert af fitu hverfi úr hillum verslana, en ætli að baki búi ekki síður sú staðreynd að þessa fitu má umbreyta í 1 milljón pakkningar af Lurpak smjöri sem gefur einkar vel af sér enn, þrátt fyrir erfiða stöðu á heimsmarkaðinum/SS.