
Deildarfundir Auðhumlu 2021
09.03.2021
Deildarfundir Auðhumlu verða haldnir sem fjarfundir dagana 15. – 18. mars. Haldnir verða fjórir fundir, sem hér segir:
Mánudaginn 15. mars kl. 11.00: Uppsveitadeild og Flóa- og Ölfusdeild
Þriðjudaginn 16. mars kl. 11.00: Norðausturdeild, Austurland og A-Skaftafellsdeild
Miðvikudaginn 17. mars kl. 11.00: Eyjafjalladeild, Landeyjadeild, Fljótshl., Hvols- og Rangárv. deild, Holta-, Landm.-, Ása og Djúpárdeild og V-Skaftafellsdeild.
Fimmtudaginn 18. mars kl. 11.00: Hvalfjarðardeild, Borgarfjarðardeild, Snæfellsnes- og Mýrasýsludeild, Breiðafjarðardeild og V-Húnaþingsdeild og A-Húnaþingsdeild.
Dagskrá:
- Ágúst Guðjónsson, stjórnarformaður AH
- Elín M. Stefánsdóttir, stjórnarformaður MS
- Kosning deildarstjóra
- Garðar Eiríksson, framkvæmdastjóri AH
- Pálmi Vilhjálmsson, forstjóri MS
- Kosning fulltrúa í fulltrúaráð
- Umræður
Allir mjólkurframleiðendur eru hvattir til að mæta á þessa frumraun Auðhumlu með að halda deildarfundi í fjarfundarformi. Til að taka þátt þarf að innskrá sig með rafrænum skilríkjum. Ef einhver er ekki með rafræn skilríki en vill taka þátt í deildarfundi, þá er viðkomandi beðinn að senda tölvupóst á netfangið gardare@audhumla.is og verða þá gerðar sérstakar ráðstafanir til að tryggja viðkomandi aðgang.