Coca-Cola í bæði Indlandi og Brasilíu
07.01.2016
Það má vel vera að hart sé í ári hjá mörgum afurðastöðvum víða um heim og að erfitt sé að ná góðri arðsemi af mjólkurframleiðslunni en stórfyrirtækið Coca-Cola er ekki í þessum hópi. Fyrirtækið hefur í mörg ár stefnt inn á mjólkurvörumarkaðinn og reyndar reynt fyrir sér með örfáar vörur og gengið all vel, svo vel að nú hefur verið tilkynnt um stór áform í bæði Indlandi og Brasilíu. Með þessari ákvörðun er ljóst að fyrirtækið ætlar sér í hörku samkeppni við stóru fyrirtækin á þeim mörkuðum, en þar eru helstu merkin Amul, Britannia og Nestlé.
Coca-Cola gerir þetta með drykknum sínum Vio og er búist við að fyrstu drykkirnir sjáist í verslunum í Indlandi fyrir sumarið. Þá er fyrirtækið sagt vera í viðræðum um yfirtöku á brasilíska afurðafélaginuLaticínios Verde Campo en það félag framleiðir bæði jógúrt og osta og er auk þess leiðandi í framleiðslu mjólkurvara án mjólkursykurs í Brasilíu/SS.