Bústólpi lækkar kjarnfóðurverð um allt að 3,5%
02.10.2014
Bústólpi sendi í dag frá sér svofellda tilkynningu:
Allt kjarnfóður hjá Bústólpa lækkar í verði frá og með deginum í dag, fimmtudaginn 2. október.
Ástæða lækkunar nú eru áframhaldandi lækkanir á kornvörum á erlendum mörkuðum. Er þetta fimmta verðlækkun á kjarnfóðri hjá Bústólpa á s.l. 12 mánuðum. Fyrirtækið hefur einsett sér að bjóða bændum ávallt hagstæðustu kjör á kjarnfóðri á hverjum tíma.
Mest nemur lækkunin 3,5% á byggkögglum, en algengustu kúafóðurblöndurnar lækka um 3%. Þannig lækkar mest selda kúafóðurblandan Alhliðablanda um 3,1%. Nýju fóðurblöndurnar Premium Pro-Fit lækka minna eða um 1% þar sem ekki er um sömu lækkun að ræða á þeim hráefnum sem þar eru notuð. Annað kjarnfóður er að lækka á bilinu 2 til 3%.
Nánari upplýsingar veitir framkvæmdastjóri í síma 460 3350