Breytingar á þjónustu DeLaval á Íslandi
24.02.2012
Eftirfarandi fréttatilkynning hefur borist frá Fóðurblöndunni:
Gerðar verða breytingar á þjónustu við Delaval viðskiptavini frá og með 1. apríl næstkomandi. Stefán Björgvinsson mun verða starfsmaður Bústólpa og mun þá starfa ásamt Ingvari Olsen að þjónustu við bændur á Norður- og Austurlandi en Magnús Skúlason mun sinna þjónustu á Vestur- og Suðurlandi. Til stendur að fjölga þjónustumönnum á Suðurlandi. Ekki verða gerðar breytingar á neyðarnúmeri Delaval þjónustu.
Nánari upplýsingar veita Hólmgeir Karlsson hjá Bústólpa í síma 460-3350 og Eyjólfur Sigurðsson hjá Fóðurblöndunni í síma 570-9800.