Brasilía að verða stærsti nautakjötsframleiðandi heims
16.09.2015
Í Brasilíu hefur nú verið sett fram áætlun um nautakjötsframleiðslu landsins til næstu fimm ára og er þar gert ráð fyrir að landið nái upp fyrir Bandaríkin og verði leiðandi í framleiðslu á nautakjöti í heiminum. Í dag er Brasilía stærsti útflytjandi á nautakjöti í heiminum en Ástralía er ekki langt undan á því sviði en skortur á nægu vatni heldur nokkuð aftur af framleiðslunni í Ástralíu. Enn eru þó Bandaríkin stæru framleiðendur á nautakjöti en stór hluti þeirrar framleiðslu fer til sölu á heimamörkuðum.
Samkvæmt áðurnefndri áætlun frá Brasilíu kemur fram að þar séu vaxtarmöguleikarnir mun meiri en í mörgum öðrum löndum enda byggir framleiðsla nautakjöts þar á beit en víða annarsstaðar á sk. þauleldi (feedlots) eins og t.d. í Bandaríkjunum. Það form við eldi á gripum telja Brasilíumenn ekki á vetur setjandi og því muni vöxtur greinarinnar á heimsvísu í framtíðinni byggja á beitargripum. Til þess að setja nautakjötsframleiðslu Brasilíu í smá samhengi þá er talið að við búgreinina og afleidd störf við slátrun og vinnslu starfi 7 milljónir manna/SS.