Beint í efni

“Borðið smjör”

19.06.2014

Undanfarin misseri hefur þess víða sést staður í fjölmiðlum að viðhorf í garð mjólkurfitu eru mjög að breytast. Óþarfi er að rekja í löngu máli að fyrir fáeinum áratugum var neysla hennar talin hafa mjög neikvæð áhrif á ýmsa heilsufarsþætti. Á síðustu árum hafa komið fram fleiri og fleiri rannsóknir sem sýna þvert hið gagnstæða. Í nýjasta hefti tímaritsins Time Magazine sem kemur út 23. júní n.k. er farið yfir þessar rannsóknir og niðurstaðan er afgerandi, eins og sjá má á forsíðumyndinni sem sést hér að neðan. Skilaboðin eru mjög skýr./BHB