Birgðir af undanrennudufti þær minnstu í 10 ár
07.05.2008
Í nýjasta hefti tímaritsins FoodCulture sem gefið er út af dönsku bændasamtökunum, kemur fram að birgðir veraldar af undanrennudufti séu nú þær minnstu í áratug. Samkvæmt spá frá bandaríska landbúnaðarráðuneytinu verða þær um 50.000 tonn á þessu ári, en árið 1998 voru þær um 250.000 tonn. Það þýðir, að mati Leif Nielsen aðalhagfræðings samtakanna, að mjólkurverð til neytenda verður áfram hátt.
Litlar birgðir auka hættuna á spákaupmennsku sem geta leitt til mikilla verðsveiflna á afurðunum. Af þeim sökum getur verð til neytenda áfram haldist hátt, þrátt fyrir að hráefnisverð til bænda rokki upp og niður. Það ýtir undir verðið að notkun á mjólk í heiminum fer ört vaxandi, því er spáð að Kínverjar muni tvöfalda mjólkurneyslu sína fyrir árið 2015. Aukin eftirspurn mun að sjálfsögðu leiða til aukinnar framleiðslu í heiminum. Sú aukning tekur þó talsverðan tíma, þar sem framleiðsluferli mjólkurframleiðslunnar er mjög langt.
Heimild: FoodCulture.