Um BÍ
Búgreinadeildir
Málaflokkar
Til baka
Um Alifuglabændur
Upplýsingar
Kolefnisspor
Til baka
Til baka
Um Hross BÍ
Fræðsla
FHB
Til baka
Um NautBÍ
Upplýsingar
LK
Til baka
Sauðfjárbændur
Upplýsingar
Til baka
Starfið
Stjórnsýsla
Til baka

BÍ fara fram á þriggja ára aðlögunartíma

13.05.2019

Lagafrumvarp sem heimilar innflutning á hráu ófrosnu kjöti, eggjum og ógerilsneyddri mjólk og mjólkurafurðum er nú til umfjöllunar á Alþingi. Bændasamtök Íslands hafa í umsögnum sínum og umfjöllun um málið lagst gegn samþykkt þess. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur kynnt aðgerðaáætlun í fimmtán liðum sem ætlað er að efla matvælaöryggi, tryggja vernd búfjárstofna og bæta samkeppnisstöðu innlendrar matvælaframleiðslu.

Nú þegar stefnir í afgreiðslu málsins er ljóst að óraunhæft er með öllu að aðgerðaáætlun ráðherra hafi einhver raunveruleg áhrif fyrir gildistöku laganna sem áætluð er 1. september næstkomandi. Mikil vinna er eftir til þess að útfæra og innleiða tillögur sem þar er að finna og jafnframt á eftir að svara veigamiklum spurningum um fjármögnun sem ekki liggur fyrir.

Í ljósi stöðu málsins fara Bændasamtökin fram á að gildistöku laganna verði frestað í að minnsta kosti þrjú ár og um leið að gripið verði til ákveðinna aðgerða til að lágmarka það tjón sem hlotist getur af. Í fyrsta lagi að tryggja fjármögnun og framkvæmd þeirra mótvægisaðgerða sem ráðherra hefur lagt til. Í öðru lagi er nauðsynlegt er að þar til bærri stofnun verði á aðlögunartíma falið að gera greiningarmörk vegna sýklalyfjaónæmra baktería í matvælum (þ.á m. kjöti og grænmeti) og að markaðssetning á afurðum sem í ræktast sýklalyfjaónæmar bakteríur verði gerð óheimil. Ljóst er að skilgreint og aukið fjármagn þarf í þá vinnu og eftirlit. Að öðru leyti þarf að fara í stórátak til að draga úr eða stöðva aukningu á útbreiðslu á sýklalyfjaónæmi í landbúnaðarafurðum.

Rök Bændasamtakanna gegn innflutningi á hráu kjöti, eggjum og ógerilsneyddri mjólk hafa komið fram í ræðu og riti undanfarin misseri. Aðstaða íslensks landbúnaðar til að keppa við erlenda framleiðslu getur ekki talist jöfn og greinin býr yfir ýmiss konar sérstöðu sem auðvelt er að glata. Sérfræðingar hafa bent á að afnám takmarkana á innflutningi, svo sem frystiskyldu, muni þýða verulega aukna áhættu á ýmsum sviðum fyrir heilsu manna og dýra. Matarsýkingum fjölgi og meiri hætta verði á að hingað berist bakteríur sem eru ónæmar fyrir sýklalyfjum.

Enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur. Það er ekki allt í lagi að stefna því í hættu. Vilji Alþingi sýna ábyrgð gagnvart íslenskum landbúnaði og innlendri matvælaframleiðslu verður að fresta gildistöku málsins til að aðgerðirnar hafi í það minnsta möguleika á að hafa áhrif.