Básafjós ekki lengur samþykkt í lífrænni mjólkurframleiðslu
13.01.2011
Frá síðustu áramótum breyttust reglur um lífræna framleiðslu í Svíþjóð á þá lund að til þess að mjólk geti fengið lífræna vottun verða kýrnar að vera í lausagöngufjósum. Þessi krafa setur þó nokkra bændur í vanda, þ.e. þá sem eru með básafjós. Kröfurnar koma reyndar ekki á óvart, enda var reglunum breytt árið 2007 en þá var gefinn þriggja ára aðlögunarfrestur. Á þeim tíma sáu þó væntanlega fáir fyrir það efnahagsástand sem síðar skapaðist og því eru enn í dag margir bændur sem ekki hafa haft ráð á að breyta aðstöðunni hjá sér. Þannig eru t.a.m. enn 12 kúabú, af þeim 20
sem eru með lífræna vottun í Gotland héraðinu, með básafjós og því með kýr sínar bundnar á bása. Þessum kúabúum hefur nú verið veittur frestur til ársins 2014 til þess að koma aðstöðunni í lag.