Beint í efni

Básafjós á útleið í Danmörku

04.08.2001

Síðustu þrjú ár hafa orðið gríðarlega miklar breytingar í kúabúskap í Danmörku, rétt eins og hérlendis. Í Danmörku hefur kúabúum fækkað um rúmlega 1.000 á hverju ári, síðust ár og hafa þar nánast eingöngu fallið úr framleiðslu fjós þar sem kýrnar eru bundnar á bása.

 

Þannig hefur lausagöngufjósum fjölgað úr 28% í 52% á síðustu þremur árum og að meðaltali byggð 500 ný fjós árlega, samhliða þessari miklu fækkun í stétt danskra kúabænda.

 

Meðalbúið hefur vaxið úr 50 í 70 kýr og meðalnytin úr 7.192 kg í 7.511 kg á þessu tímabili.