Beint í efni

Banna geldstöðulyfið Velactis

05.07.2016

Í desemer síðastliðnum gaf Evrópusambandið heimild fyrir notkun á geldstöðulyfinu Velactis og hefur lyfið síðan verið markaðssett víða í Evrópu sem hálfgert undralyf sem stöðvar mjólkurframleiðslu á einum degi! Lyfið þótti því afar heppilegt til nokunar á kúabúum þar sem erfiðlega hefur gengið að fá kýr til þess að hætta mjólkurframleiðslu, þegar þær eiga að fara í geldstöðu. Nú er svo komin all mikil reynsla með þetta lyf og tilfellið er að mjólkurframleiðsla kúnna snarstoppar á einungis einum sólarhring, jafnvel þó þær séu jafnvel í 35-40 lítra dagsnyt.

 

En þar með eru kostir lyfsins líka taldir upp og þrátt fyrir að lyfið sé heimilt til notkunar almennt í löndum Evrópusambandsins, þá hafa nú yfirvöld í Danmörku bannað noktun lyfsins, og hafa bæði norsk, hollensk og ítölsk yfirvöld fylgt í kjölfarið. Ástæða þess að einstök lönd hafa nú bannað notkun lyfsins eru alvarlegar aukaverkanir,en allt of mörg ótímabær dauðsföll kúa hafa orðið á sumum af þeim kúabúum sem hafa notað lyfið/SS.