Bætur vegna kálfadauða
18.01.2006
Athygli kúabænda skal vakin á því að þeir eiga rétt á bótum úr Bjargráðasjóði vegna kálfadauða. Á heimasíðu Bjargráðasjóðs er að finna upplýsingar um verðlagningu tjóna, má nálgast þær með því að smella hér. Þá er þar og að finna umsóknareyðublað til sjóðsins. Með því að smella hér má svo nálgast nánari upplýsingar um sjóðinn, lög sjóðsins, úthlutunarreglur og reglugerð um hann.