Um BÍ
Búgreinadeildir
Málaflokkar
Til baka
Um Alifuglabændur
Upplýsingar
Kolefnisspor
Til baka
Til baka
Um Hross BÍ
Fræðsla
FHB
Til baka
Um NautBÍ
Upplýsingar
LK
Til baka
Sauðfjárbændur
Upplýsingar
Til baka
Starfið
Stjórnsýsla
Til baka

Bændur bera ekki ábyrgð á hækkun matvælaverðs

24.08.2022

Í samtali við útvarpsfólk Rásar 2 í morgunútvarpinu þriðjudaginn 23. ágúst var Breka Karlssyni, formanni Neytendasamtakana, umhugað um verðlag á íslenskum landbúnaðarafurðum og hvort að tollvernd hafi ýtt undir verðhækkanir á þeim verðbólgutímum sem nú standa yfir. Hækkanir á íslenskum landbúnaðarvörum til neytenda voru nefndar í sömu andrá og methagnaður fjármálafyrirtækja og verslana og aðilar voru beðnir um að sína samfélagslega ábyrgð í verki og halda aftur af verðhækkunum með því að minnka álagningu. Einnig var talað um að hækkun á þessum verðum væri innlend verðbólga en ekki innflutt verðbólga og því væri varla erlendum áhrifaþáttum um að kenna. Að nefna þessa hluti í sömu andrá er afar sérstakur málflutningur.

Ef horft er á verðþróun íslenskra landbúnaðarafurða aftur til byrjun árs 2018 hefur hún í flestum tilfellum haldist hönd í hönd við vísitölu neysluverðs. Er það þrátt fyrir að tollvernd á íslenska matvælaframleiðslu hafi lækkað mikið á sama tímabili. Stór auknir tollkvótar undanfarinna ára auk lækkana á tollagjöldum hafa ekki orðið til þess að lækka verð til neytenda. Hins vegar hefur afurðaverð til bænda ekki þróast í takt við tíð og tíma og greiða sauðfjár- og nautakjötsbændur með hverju kílói sem fer á markað.

Einnig er vert að taka fram að helstu kostnaðarliðir í íslenskum landbúnaði eru erlend aðföng. Nýlega þurftu aðilar landbúnaðarins og stjórnvalda að vinna saman til að bregðast við skarpri hækkun á innfluttum aðföngum, áburði, fóðri, plasti og olíu. Tíu milljarða hækkun á aðföngum á landsvísu setti bændur í alvarlega stöðu. Þrátt fyrir að íslenskar landbúnaðarafurðir reiði sig  á íslenskt vinnuafl og íslenskar auðlindir þá eru þær næmar fyrir breytingum á heimsmarkaðsverðum, rétt eins og innflutt matvæli.

Umræða um að innlend matvælaframleiðsla sé undanþegin hækkun á heimsmarkaðsverðum er því á villigötum. Einnig hefur það heldur ekki reynst rétt að auknar heimildir til innflutnings hafi skilað sér í bættum verðum til neytenda. Íslenskir bændur eru því saklausir þegar kemur að hækkun matvælaverðs enda eru þeir ekki að vænka sinn hag á kostnað neytenda.

Höfundur er Sverrir Falur Björnsson, hagfræðingur Bændasamtakanna.