
Bændasamtökin óska eftir öflugum fjármálastjóra
07.11.2022
Bændasamtök Íslands leita að fjármálastjóra. Í boði er krefjandi starf fyrir öflugan einstakling, þar sem frumkvæði, samskiptafærni og skipulögð vinnubrögð fá að njóta sín. Fjármálastjóri tekur virkan þátt í stjórnun og stefnumótun og er lykilstarfsmaður hjá samtökunum. Fjármálastjóri heyrir undir framkvæmdastjóra og starfar náið með honum sem og formanni og öðru starfsfólki BÍ, félagsmönnum og aðildarfélögum þess. Í boði er krefjandi en jafnframt spennandi starf.