Beint í efni

Bændasamtökin áfrýja úrskurði Samkeppniseftirlitsins

19.03.2009

Stjórn Bændasamtaka Íslands ákvað á fundi sínum í gær að áfrýja úrskurði Samkeppniseftirlitsins sem birtur var 6. mars síðastliðinn til úrskurðarnefndar samkeppnismála. Eins og kunnugt er komst Samkeppniseftirlitið að þeirri niðurstöðu að Bændasamtök Íslands hefðu brotið gegn samkeppnislögum með aðgerðum sem hafi miðað að því að hækka verð á búvörum. Brotið hafi snúið að búrvörum sem ekki lúta opinberri verðlagningu samkvæmt búvörulögum.

Með ákvörðuninni var Bændasamtökunum gert að greiða tíu milljónir króna í stjórnvaldssekt og að grípa til aðgerða til að koma í veg fyrir að samskonar brot verði ekki endurtekin.

Ákvörðun stjórnar er í beinu samhengi við umræður á nýafstöðnu Búnaðarþingi. Þar kom berlega í ljós að bændur una því ekki að liggja undir ámæli fyrir brot á samkeppnislögunum. Úrskurðarnefnd samkeppniseftirlitsins hefur nú sex vikur til að úrskurða um áfrýjun Bændasamtakanna. Því má gera ráð fyrir að niðurstaða fáist í málið ekki seinna en í byrjun maí.