Um BÍ
Búgreinadeildir
Málaflokkar
Til baka
Um Alifuglabændur
Upplýsingar
Kolefnisspor
Til baka
Til baka
Um Hross BÍ
Fræðsla
FHB
Til baka
Um NautBÍ
Upplýsingar
LK
Til baka
Sauðfjárbændur
Upplýsingar
Til baka
Starfið
Stjórnsýsla
Til baka

Bændafundir vegna búvörusamninga

17.11.2015

Þessa dagana sitja fulltrúar bænda og stjórnvalda á fundum vegna nýrra búvörusamninga. Formlega hófust viðræður 1. september sl. en síðan þá hafa samningamenn fundað stíft. Viðræður þokast í rétta átt en mörg útfærsluatriði eru enn í vinnslu. Bændasamtökin hafa af því tilefni boðað til formannafundar í Bændahöllinni í Reykjavík mánudaginn 23. nóvember. Þar koma saman formenn og framkvæmdastjórar aðildarfélaga samtakanna.

 kjölfarið á formannafundinum verða haldnir fjórir bændafundir til þess að ræða gerð búvörusamninga með almennum félagsmönnum. Þar verða forystumenn bænda með framsögu og umræður í kjölfarið. Fundirnir verða á eftirtöldum stöðum:

Árhúsum á Hellu, þriðjudaginn 24. nóvember kl. 20.30

Hlíðarbæ í Eyjafirði, miðvikudaginn 25. nóvember kl. 11.00

Hótel Borgarnesi, miðvikudaginn 25. nóvember kl. 20.30

Valaskjálf á Egilsstöðum, fimmtudaginn 26. nóvember kl. 11.00

 

Almennir bændafundir verða haldnir í héruðum um allt land þegar samningar verða fullgerðir en þær dagsetningar liggja ekki fyrir. Í kjölfar þeirra verður boðað til atkvæðagreiðslu meðal bænda.

Landssamband kúabænda hyggst halda fulltrúafund með sínu félagskjörna fólki þriðjudaginn 24. nóv. kl. 11.00 í Bændahöllinni.

Landssamtök sauðfjárbænda hafa boðað til aukaaðalfundar vegna umræðna um nýja búvörusamninga. Sá fundur verður haldinn í Bændahöllinni föstudaginn 27. nóvember nk. og hefst kl. 11:00.