
Bændafundir – MYNDBAND
19.11.2010
KYNNINGARMYNDBAND
Almennir haustfundir Bændasamtakanna hefjast mánudaginn 22. nóvember og standa þeir til 6. desember. Alls verða fundirnir 16 talsins og verða þeir haldnir um allt land. Á fundunum verða m.a. rædd þau tækifæri sem landbúnaðurinn hefur til þess að efla þjóðarhag og hvar sóknarfæri liggja.
Framsögumenn verða stjórnarmenn BÍ ásamt ýmsum starfsmönnum samstakanna.
Nýgerður búnaðarlagasamningur verður til umfjöllunar og spurt verður hvernig unnt er að verja kjör bænda í erfiðu efnahagsástandi. Haraldur Benediktsson, formaður BÍ, segir í leiðara í nýju Bændablaði að meginerindi á bændafundum sé að heyra hvernig félagsmenn BÍ vilji beita sínum samtökum. Hann hvetur jafnframt alla bændur til að mæta því á bændafundum gefist kostur á að láta í sér heyra og hlusta á aðra.
Bændafundirnir verða haldnir á eftirfarandi stöðum:
Vopnafjörður | mán. 6. des. | 14:00 | Hótel Tangi - FRESTAÐ |
Egilsstaðir | mán. 6. des. | 20:30 | Hótel Hérað |
Hornafjörður | mán. 6. des. | 14:00 | Smyrlabjörg |
Kirkjubæjarklaustur | mán. 6. des. | 20:30 | Geirland |