
Bændafundir dagana 16.-18. janúar
10.01.2018
Forystufólk Bændasamtaka Íslands heldur til fundar við bændur nú í upphafi árs. Alls eru skipulagðir 18 almennir bændafundir víðs vegar um landið dagana 16.-18. janúar. Fulltrúar Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins verða með í för og ræða um framtíðarsýn og þróun ráðgjafarþjónustu.
Að sögn Sindra Sigurgeirssonar, formanns BÍ, er af mörgu að taka. Rætt verður um stöðuna í landbúnaðinum og farið vítt yfir sviðið. Árið 2017 var fyrsta ár nýrra búvörusamninga og fyrir liggur fyrsta endurskoðun þeirra. Þá er nýlegur dómur EFTA-dómstólsins um innflutning á hráu kjöti og eggjum bændum umhugsunarefni og ljóst að því máli er hvergi nærri lokið. Sindri segir að viðfangsefni næstu missera verði áfram þau að bæta hag bænda og móta framtíðarsýn fyrir atvinnugreinina. Hann segir mikilvægt fyrir bændastéttina að standa saman og að rödd hennar hljómi sem víðast og sterkast. „Við verðum að gæta hagsmuna landbúnaðarins og þess vegna rekum við öflug Bændasamtök,“ segir Sindri í bréfi til félagsmanna sem birt er í auglýsingu í nýju Bændablaði.
Hádegis- og kvöldfundir
Fundirnir hefjast í hádeginu þriðjudaginn 16. janúar með fundum á Kópaskeri og Egilsstöðum. Athugið að auglýstum fundi á Ísafirði er frestað vegna óhagstæðrar veðurspár.
Á þriðjudagskvöld kl. 20.30 verða fundir í Kjós, Breiðumýri og Berufirði.
Í hádeginu á miðvikudag 17. janúar verða fundir á Blönduósi, í Eyjafirði og í Hornafirði.
Kvöldfundir á miðvikudag verða í Skagafirði, á Ströndum og á Kirkjubæjarklaustri.
Í hádeginu á fimmtudag verða fundir á Snæfellsnesi, í Heimalandi og á Barðaströnd.
Fundalotunni lýkur með kvöldfundum í Dölum, á Hvanneyri og í Þingborg í Flóa.
Allir núverandi og verðandi félagsmenn í Bændasamtökum Íslands eru velkomnir á fundina. Nánari upplýsingar um staði og tímasetningar er að finna hér undir og í auglýsingu á bls. 39 í 1. tbl. Bændablaðsins 2018.
Fundarstaður | Dagsetning | Tími | Svæði | |
FRESTAÐ - |
|
|
|
|
Fjallalamb | 16. janúar | þriðjudagur | 12.00 | Kópasker |
Hótel Icelandair | 16. janúar | þriðjudagur | 12.00 | Egilsstaðir |
Ásgarður | 16. janúar | þriðjudagur | 20.30 | Kjós |
Breiðamýri | 16. janúar | þriðjudagur | 20.30 | S-Þingeyjarsýsla |
Karlsstaðir | 16. janúar | þriðjudagur | 20.30 | Berufjörður |
Félagsheimilið Blönduósi | 17. janúar | miðvikudagur | 12.00 | Blönduós |
Hlíðarbær | 17. janúar | miðvikudagur | 12.00 | Eyjafjörður |
Mánagarður | 17. janúar | miðvikudagur | 12.00 | Hornafjörður |
Langamýri | 17. janúar | miðvikudagur | 20.30 | Skagafjörður |
Sævangur | 17. janúar | miðvikudagur | 20.30 | Strandir |
Kirkjuhvoll | 17. janúar | miðvikudagur | 20.30 | Kirkjubæjarklaustur |
Breiðablik | 18. janúar | fimmtudagur | 12.00 | Snæfellsnes |
Heimaland | 18. janúar | fimmtudagur | 12.00 | Rangárvallasýsla |
Birkimelur | 18. janúar | fimmtudagur | 12.00 | Barðaströnd |
Dalabúð | 18. janúar | fimmtudagur | 20.30 | Dalir |
Landbúnaðarháskólinn | 18. janúar | fimmtudagur | 20.30 | Hvanneyri |
Þingborg | 18. janúar | fimmtudagur | 20.30 | Árnessýsla |
Fundaplan er birt með fyrirvara um breytingar.
Upplýsingar vegna bændafunda veitir Tjörvi Bjarnason hjá Bændasamtökunum í síma 563-0332 eða í netfangið tjorvi@bondi.is