Um BÍ
Búgreinadeildir
Málaflokkar
Til baka
Um Alifuglabændur
Upplýsingar
Kolefnisspor
Til baka
Til baka
Um Hross BÍ
Fræðsla
FHB
Til baka
Um NautBÍ
Upplýsingar
LK
Til baka
Sauðfjárbændur
Upplýsingar
Til baka
Starfið
Stjórnsýsla
Til baka

Aukning í framleiðslu og sölu nautakjöts

21.07.2010

Sala á nautakjöti í liðnum mánuði var afar góð og varð veruleg aukning á sölunni frá fyrra ári, þ.e. miðað við júní í fyrra, eða um 7,8%. Í byrjun júní urðu þónokkrar hækkanir á verðum fyrir nautgripaafurðir til kúabænda og er ekki að sjá að þær hækkanir hafi með nokkrum hætti dregið úr sölunni.

 

Heildarsalan á nautakjötisíðustu 12 mánuði hefur einnig aukist miðað við fyrra ár eða um 5,7%, eða um

rúmlega 200 tonn. Á sama tíma hefur orðið þónokkur samdráttur í sölu á bæði kinda- og svínakjöti. Alífuglakjöt heldur hinsvegar áfram að seljast vel og nam 12 mánaða söluaukning þess 3,5%. 

 

Ef horft er til nánari sundurliðunar talna um nautakjötið má sjá að af heildarsölunni síðustu 12 mánuði, upp á 3.849 tonn, þá er hlutfall ungnauta 57,4% heildarmagnsins.

  

Nánar má lesa um framleiðslu og sölu á kjöti á vef Bændasamtaka Íslands með því að smella hér.