Aukin framleiðsla frá færri búum
27.09.2012
Þróun mjólkurframleiðslunnar í Svíþjóð er á áþekkri leið og í öðrum löndum, búunum fækkar og þau stækka. Nýtt uppgjör skýrsluhaldsins sýnir að bæði kúm og búum fækkar en framleiðslan eykst þó samhliða, sem skýrist af aukinni meðalnyt kúnna. Samtals hefur kúabúum í Svíþjóð fækkað um fimmtung á fimm árum og frá síðasta ári fækkaði búunum sem eru með í skýrsluhaldinu um 5,6%, í 3.798 kúabú.
Meðalbúið í Svíþjóð er nú með 72 kýr og er meðalnytin komin í 9.532 kg orkuleiðréttrar mjólkur en nokkur munur er á milli héraða í landinu. Þannig mjólka kýrnar í Halland í suð-vestur Svíþjóð mest eða 9.974 kg orkuleiðréttrar mjólkur, sem er þó heldur minna en fyrir ári síðan þegar meðalnytin fór yfir 10 tonn eða nánar tiltekið 10.010 kg/SS