Um BÍ
Búgreinadeildir
Málaflokkar
Til baka
Um Alifuglabændur
Upplýsingar
Kolefnisspor
Til baka
Til baka
Um Hross BÍ
Fræðsla
FHB
Til baka
Um NautBÍ
Upplýsingar
LK
Til baka
Sauðfjárbændur
Upplýsingar
Til baka
Starfið
Stjórnsýsla
Til baka

Aukabúnaðarþing fjallar um leiðbeiningaþjónustu

27.10.2012

Boðað hefur verið til aukabúnaðarþings mánudaginn 29. október vegna breyt­inga á leiðbeininga­þjónustu land­­búnaðar­ins. Verður þingið haldið í framhaldi af samþykkt síðasta búnaðar­þings, þar sem ályktað var um grundvallarbreytingar á starfseminni.

Leiðbeiningaþjónusta á vegum samtaka bænda byggir á um 100 ára gömlum grunni en hefur tekið miklum breytingum á hverjum tíma í takti við aðstæður í landbúnaði. Síðustu meiriháttar breytingar voru gerðar árið 1998. Þá var markmiðið að leiðbeiningastöðvar væru ekki með færri en þrjá ráðunauta í starfi.

Á árinu 2010 var leitað til systursamtaka BÍ í Danmörku til að vinna úttekt á starfseminni og lögðu þau til að gerðar yrðu á henni grundvallar breytingar. Eftir búnaðarþing í mars síðastliðnum var næsti áfangi að móta hina nýju starfsemi. Var Ágúst Þorbjörnsson hjá ráðgjafarfyrirtækinu Framsækni ehf. ráðinn verkefnisstjóri og kynnti hann tillögur sínar fyrir formanna­fundi aðildarfélaga BÍ í september. Tillögur hans eru nú til umræðu og mun stýrihópur, sem stjórn BÍ skipaði, leggja endanlegar tillögur sínar fyrir búnaðarþing.

Í kjölfar þeirrar úttektar hefur farið fram mikil vinna sem miðar að því að flytja leiðbeiningaþjónustuna í sérstakt félag með eigin stjórn sem sem starfi sjálfstætt en verði eigi að síður í eigu bænda.