Beint í efni

Aukabúnaðarþing boðað 14.nóvember 2023

19.10.2023

Á Búnaðarþingi 2023 sem haldið var dagana 30.-31. mars sl. var tekin ákvörðun um að fresta afgreiðslu breytinga á samþykktum BÍ sem lágu fyrir þinginu til aukabúnaðarþings sem haldið yrði að hausti 2023. Kom þetta til þar sem tillaga var samþykkt á þinginu um að skoðað yrði að sameina Búgreina- og Búnaðarþing í einn þriggja daga viðburð.

Stjórn BÍ hefur því boðað til Aukabúnaðarþings þann 14. nóvember 2023, kl. 10, sem haldið verður með fjarfundabúnaði (Teams).

Dagskrá Aukabúnaðarþings:

  1. Þingsetning.
  2. Álit kjörbréfanefndar.
  3. Kosning forseta þingsins og tveggja til vara.
  4. Kosning tveggja ritara og tveggja skrifara.
  5. Mál sem lögð hafa verið fram.
  6. Breytingar á samþykktum.

Mál skulu berast stjórn BÍ tveimur vikum fyrir þingsetningu, seinast 31. október 2023. Nánar má lesa um Aukabúnaðarþing í 13. gr. samþykkta BÍ og í Þingsköpum Búnaðarþings sem nálgast má á www.bondi.is undir Um BÍ og þar undir Samþykktir.

Fundargerð Búnaðarþings 2023 er aðgengileg á Bændatorgi.

Nánari upplýsingar veitir Hilmar Vilberg Gylfason, hilmar@bondi.is