Beint í efni

Aukabúgreinaþing Nautgripabænda BÍ er á morgun, 24. janúar

23.01.2023

Á morgun, þann 24. janúar 2023, kl. 13:00 mun Aukabúgreinaþing Nautgripabænda fara fram á Teams. 

Aukabúgreinaþingið er boðað sérstaklega til þess að taka fyrir breytingu á grein 6.1 í samþykktum Nautgripabænda BÍ en í grein 6.1. samþykktanna stendur:

„Stjórn Nautgripabænda BÍ skal skipuð fjórum einstaklingum auk formanns, sem allir skulu kosnir á Búgreinaþingi, formaður til tveggja ára en aðrir stjórnarmenn til eins árs. Fyrst skal kjósa formann, næst 4 fulltrúa í stjórn og loks 3 varamenn. Kosningar skulu vera leynilegar. Stjórn kýs sér varaformann og ritara.“

  

Lögð er til eftirfarandi breyting á greininni: 

Stjórn Nautgripabænda BÍ skal skipuð fjórum einstaklingum auk formanns, sem allir skulu kosnir á Búgreinaþingi, formaður til tveggja ára en aðrir stjórnarmenn til eins árs. Fyrst skal kjósa formann, næst 4 fulltrúa í stjórn og loks 3 varamenn. Kosningar skulu vera leynilegar. Stjórn kýs sér varaformann og ritara.

Á búgreinaþingi í febrúar 2023 verður formaður þó kosinn til eins árs (fram að næsta búgreinaþingi) til að kosning formanns og stjórnar BÍ lendi á sama starfsárinu. Ákvæðið um að formaður skuli kosinn til tveggja ára tekur gildi að því starfstímabili stjórnar loknu.

  

Verði viðbótarákvæðið samþykkt, verður kosið eftir því á Búgreinaþingi 2023 (23. febrúar). 

  

Samkvæmt samþykktum Nautgripabænda BÍ hafa einungis fulltrúar Búgreinaþings 2022 tillögu- og atkvæðisrétt á Aukabúgreinaþinginu. Auk þeirra hefur stjórn Nautgripabænda BÍ málfrelsi og tillögurétt.


Aukabúgreinaþingið er þó opið öllum félagsmönnum deildarinnar til áheyrnar en óski þeir eftir að sitja þingið með málfrelsi og tillögurétt skal það borið undir fundinn.


Fyrir þá sem hafa áhuga á að fylgjast með Aukabúgreinaþing Nautgripabænda þann 24. janúar þá má finna hlekk á fundinn hér.