Um BÍ
Búgreinadeildir
Málaflokkar
Til baka
Um Alifuglabændur
Upplýsingar
Kolefnisspor
Til baka
Til baka
Um Hross BÍ
Fræðsla
FHB
Til baka
Um NautBÍ
Upplýsingar
LK
Til baka
Sauðfjárbændur
Upplýsingar
Til baka
Starfið
Stjórnsýsla
Til baka

Auglýst eftir umsóknum um jarðræktarstyrki í garðyrkju

30.06.2022

Opnað hefur verið fyrir rafrænar umsóknir um jarðræktarstyrki í garðyrkju vegna útiræktunar á grænmeti, kartöflum og garðávöxtum til manneldis á Afurð.is.

Gert er ráð fyrir sérstakri álagsgreiðslu á jarðræktarstyrki í garðyrkju vegna alvarlegrar stöðu í matvælaframleiðslu á Íslandi, sem reiknuð verður á grunni hefðbundinna umsókna.

Umsóknum skal skilað eigi síðar en á miðnætti 15. ágúst næstkomandi. Til þess að geta sent inn umsókn í AFURÐ þarf að liggja fyrir skýrsla í forritinu Jörð. Vakin er sérstök athygli á að hægt er að skila skýrslu í Jörð án þess að endanleg uppskera ársins liggi fyrir.

Skilyrði fyrir veitingu stuðnings eru skil á skýrsluhaldi í skýrsluhaldsforritinu Jörð og fullnægjandi túnkort af ræktunarspildu sem sótt er um styrk fyrir. Kortið á að sýna þær ræktunarspildur sem eru grundvöllur umsóknar um styrk. Þá er lögð áhersla á skráningu ræktunar, áburðargjafar, varnarefnanotkunar o.fl., í samræmi við ákvæði reglugerðar um stuðning við garðyrkju nr. 1273/2020. Framlag á hvern hektara (ha) fyrir hvert bú, tekur mið af heildarfjölda hektara sem sótt er um.

Fjöldi hektara sem sótt er um reiknast í samræmi við eftirfarandi stuðla:

Fjöldi ha sem sótt er um       Stuðull fyrir umsótta ha

1-30 ha                                    1,0 fyrir rótarafurðir

1-30 ha                                    4,0 fyrir afurðir ræktaðar ofanjarðar

> 30 ha                                    0,7 fyrir rótararfurðir

> 30 ha                                    3,0 fyrir afurðir ræktaðar ofanjarðar

https://afurd.bondi.is/