Um BÍ
Búgreinadeildir
Málaflokkar
Til baka
Um Alifuglabændur
Upplýsingar
Kolefnisspor
Til baka
Til baka
Um Hross BÍ
Fræðsla
FHB
Til baka
Um NautBÍ
Upplýsingar
LK
Til baka
Sauðfjárbændur
Upplýsingar
Til baka
Starfið
Stjórnsýsla
Til baka

Auglýst eftir umsóknum um jarðræktarstyrki í garðyrkju

01.08.2021

Opnað hefur verið fyrir rafrænar umsóknir um jarðræktarstyrki í garðyrkju vegna útiræktunar á grænmeti, kartöflum og garð­ávöxtum til manneldis á Afurð.is, greiðslukerfi landbúnaðarins.

Umsóknum skal skilað eigi síðar en 15. ágúst næstkomandiVakin er athygli á að hægt er að skila skýrslu í Jörð og umsókn í AFURÐ án þess að endanleg uppskera ársins liggi fyrir.

Skilyrði fyrir veitingu stuðnings eru skil á skýrsluhaldi í skýrsluhaldsforritinu Jörð og fullnægjandi túnkort af ræktunar­spildu sem sótt er um styrk fyrir. Kortið á að sýna þær ræktunarspildur sem eru grund­völlur að styrkjum. Þá er lögð áhersla á skráningu ræktunar, áburðargjafar, varnarefnanotkunar o.fl., í samræmi við ákvæði reglugerðar um stuðning við garðyrkju nr. 1273/2020.

Framlag á hvern hektara (ha) fyrir hvert bú tekur mið af heildarfjölda hektara sem sótt er um. Fjöldi hektara sem sótt er um reiknast í samræmi við eftirfarandi stuðla:

Fjöldi ha sem sótt er um            Stuðull umsóttra ha

1-30 ha                                    1,0 fyrir rótarafurðir

1-30 ha                                    4,0 fyrir afurðir ræktaðar ofanjarðar

> 30 ha                                    0,7 fyrir rótararfurðir

> 30 ha                                    3,0 fyrir afurðir ræktaðar ofanjarðar

 

Hver framleiðandi getur ekki fengið hærri greiðslur samtals en 10% af því fjármagni sem til ráð­stöf­unar er árlega.