Beint í efni

Auglýst eftir framboðum til stjórnar LK

30.10.2020

Landssamband kúabænda auglýsir hér með eftir framboðum til formanns og stjórnar samtakanna.

Kjör til formanns og stjórnar LK fer fram á aðalfundi samtakanna 6. nóvember næstkomandi. Stjórn LK skipa fimm einstaklingar, formaður og 4 meðstjórnendur, kosnir á aðalfundi með leynilegri kosningu og eru allir félagsmenn LK í kjöri. Ekki er kveðið á um framboðsfrest í samþykktum samtakanna og því hægt að gefa kost á sér allt fram að kosningu.

Arnar Árnason, sitjandi formaður, hefur gefið það út að hann muni ekki gefa áframhaldandi kost á sér til áframhaldandi formannssetu. Herdís Magna Gunnarsdóttir, varaformaður LK, hefur gefið kost á sér sem formaður.

Þess skal getið að eftirfarandi aðilar hafa nú þegar gefið kost á sér til stjórnar LK:

  • Bessi Freyr Vésteinsson, Hofsstaðaseli. Stjórnarmaður LK frá 2016.
  • Rafn Bergsson, Hólmahjáleigu. Stjórnarmaður LK frá 2018 og formaður Félags kúabænda á Suðurlandi.
  • Vaka Sigurðardóttir, Dagverðareyri. Formaður félags eyfirskra kúabænda.
  • Sigurbjörg Ottesen, Hjarðarfelli.*

*Ath. Fréttin var uppfærð kl.13.07 og nafni Sigurbjargar bætt við eftir að tilkynning um framboð barst skrifstofu LK.