
Auðhumla ræðst í róttækar aðgerðir til að tryggja framleiðsluferla
27.03.2020
Deildarfundum Auðhumlu, sem eftir var að halda, hefur verið frestað ótímabundið sem og aðalfundi þar til ástandið batnar. Verður upplýst um það síðar þegar aðstæður í þjóðfélaginu leyfa.
Ákveðið hefur verið að hætta tímabundið móttöku og mælingu á kýrsýnum, frumusýnum, gerlasýnum, fangsýnum og og öðrum sýnum sem starfsmenn MS og Auðhumlu taka ekki sjálfir. Ákvörðunin er tekin í samráði við aðgerðarhóp Bændasamtaka Íslands til að girða fyrir smitleiðir vegna COVID-19. Gildi fyrirkomulagið meðan ástandið varir. „Ekki verður tekið við sýnum hvorki í samlögunum né af bílstjórum. Þessi ráðstöfun tekur þegar gildi. Ef upp koma neyðartilfelli þá endilega verið í sambandi við gæðaráðgjafa Auðhumlu. Varðandi tengingu á fjölda kýrsýna við beingreiðslur þá er erindi í ráðuneytinu til úrvinnslu um að gefa undanþágu á fjölda sýna sem þurft hefur að uppfylla,“ segir í tilkynningunni.
Önnur atriði sem gripið hefur verið til og vert er að vekja athygli á:
- Gæðaráðgjafar eru ekki lengur með starfsaðstöðu í samlögunum. Þeir eru í tölvu- og símasambandi. Símanúmer eru á forsíðu audhumla.is
- Heimsóknir gæðaráðgjafa til mjólkurframleiðenda varðandi öflun aukasýna verða takmarkaðar eins og kostur er. Enginn framleiðendi verður heimsóttur nema í ýtrustu neyð og í samráði við viðkomandi.
- Ef upp koma tilfelli þar sem vafi er um mjólkurgæði, verður alltaf fyrsti kostur að láta mjólkurbílstjóra taka sýni.
- Mjólkurbílstjórar eru nú með einnota hanska og handspritt meðferðis í mjólkurbílunum. Framleiðendur eru vinsamlegast beðnir um að hafa ílát eða poka utan við mjólkurhús þar sem bílstjórar geta losað sig við hanskana að notkun lokinni. Eins eru framleiðendur beðnir að forðast samskipti við bílstjóra eins og kostur er meðan þetta ástand varir.
- Leiðbeiningar til matvælaframleiðenda er að finna á https://www.mast.is/is/um-mast/frettir/frettir/koronaveiran-og-framleidsla-graenmetis-og-dyraafurda
- Einnig eru góð ráð að finna hjá RML https://www.rml.is/is/starfsemi/frettir/smitvarnir-vegna-covid-19
Í tilkynningunni segir ennfremur: „Þið ágætu framleiðendur ásamt afurðafélögum ykkar er mikilvægur hlekkur í matvælaöryggi þjóðarinnar og aldrei eins og nú þegar á reynir fyrir alvöru. Vonandi átta stjórnvöld sig á þessari staðreynd og tryggja hag landbúnaðarins betur hér eftir en undanfarin ár og munið að sól hækkar á lofti og þessu ástandi linnir. Gætum vel að sóttvörnum og höldum áfram að framleiða okkur góðu landbúnaðarvörur.“