
Atvinnutækifæri fyrir flóttamenn
26.04.2022
Á vef vinnumálastofnunar www.vmst.is geta þeir atvinnurekendur sem vilja taka þátt í samræmdri móttöku flóttamanna og bjóða fólki vinnu, sett sig í samband við VMST í gegnum netfangið flottamenn@vmst.is og ráðgjafar munu hafa samband.
Eins er vakin athygli atvinnurekenda á að hægt er að sækja um ráðningarstyrk sem hefur það að markmiði að auðvelda atvinnurekendum að ráða starfsfólk og fjölga atvinnutækifærum þeirra sem eru án vinnu. Atvinnurekandi getur fengið 100% grunnatvinnuleysisbætur auk 11,5% framlags í lífeyrissjóð í allt að 6 mánuði greiddar með nýjum starfskrafti. Atvinnurekandi fyllir út umsókn um ráðningarstyrk á Mínum síðum atvinnurekenda. Frekari upplýsingar má nálgast á heimasíðu VMST https://vinnumalastofnun.is/atvinnurekandi/radningarstyrkir/radningarstyrkur en einnig er hægt að senda fyrirspurn á netfangið vinnumidlun@vmst.is