Ástralir flytja út minna af lífdýrum
27.01.2012
Fyrstu ellefu mánuði síðasta árs voru fluttir alls rúmlega 600 þúsund nautgripir á fæti frá Ástralíu til annarra landa. Þó svo að fjöldinn sé mikill, eða nærri tífaldur heildarfjöldi allra nautgripa á Íslandi, þá er um 20% samdrátt að ræða frá árinu 2010.
Af þeim löndum sem kaupir flesta gripi stendur Indónesía upp úr en í nóvember sl. fóru þangað tæplega 38 þúsund nautgripir frá Ástralíu. Til samanburðar má geta þess að í nóvember keyptu Rússar 14 þúsund nautgripi og 5.500 gripir voru sendir til Filippseyja/SS.