Beint í efni

Ásetningur nautkálfa svipaður milli ára

13.03.2008

Þegar litið er á gögn úr MARK, gagnagrunni einstaklingsmerkinga búfjár, kemur í ljós að ásetningur nautkálfa var mjög líkur á árinu 2007 og árið áður. Það má því búast við svipaðri nautakjötsframleiðslu á næstu misserum og verið hefur.  

Árið 2006 voru settir á 7.686 nautkálfar en í fyrra voru þeir 129 fleiri, eða 7.815 talsins. Það er 1,6% aukning. Gera má ráð fyrir að mjólkurframleiðslan verði eitthvað minni í ár en í fyrra og framboð af kúm til slátrunar eigi eftir að aukast lítillega vegna þessa.

 

Neysla á innlendu nautakjöti hefur farið vaxandi á síðustu misserum og má því segja að markaður fyrir nautgripakjöt sé í ágætu jafnvægi um þessar mundir.