Beint í efni

Ársfundur Fagráðs í nautgriparækt á föstudaginn

14.03.2005

Föstudaginn 18. mars nk. verður haldinn ársfundur Fagráðs í nautgriparækt. Fundurinn verður að þessu sinni haldinn á Hvanneyri í Borgarfirði og hefst hann kl. 13:30 í matsal Landbúnaðarháskólans. Á dagskrá fundarins eru fjölmörg áhugaverð erindi sem snerta nautgriparækt. Allir kúabændur

sem og annað áhugafólk um nautgriparækt er velkomið á fundinn, enda er hann opinn öllum.

 

Dagskrá fundarins er eftirfarandi:

 

1. Landbúnaðarháskóli Íslands og nautgriparæktin.

Ágúst Sigurðsson, rektor LBH

 

2. Áherslur í rannsókna- og þróunarstarfi í nautgriparækt næstu ár

Þórólfur Sveinsson, formaður Fagráðs og LK

 

3. Reyndu nautin úr nautaárgangi frá 1998 koma til notkunar

Jón Viðar Jónmundsson, landsráðunautur BÍ

 

4. Fyrstu niðurstöður úr mælingum á lausum fitusýrum í íslenskri mjólk

Torfi Jóhannesson, lektor við LBH