Ársfundur fagráðs í nautgriparækt 18. apríl
10.04.2013
Ársfundur fagráðs í nautgriparækt
verður haldinn fimmtudaginn 18. apríl n.k. frá kl. 13:00- 16:00 á Sveitasetrinu Gauksmýri í Húnaþingi vestra.
Aðalefni fundarins er beit nautgripa, en einnig verður kynnt starf fagráðs á síðasta starfsári.
Erindin sem flutt verða eru:
Útbeit nautgripa. Katrín Andrésdóttir, fyrrverandi héraðsdýralæknir.
Beit mjólkurkúa – vor, sumar og haust. Eiríkur Loftsson, ábyrgðarmaður fóðrunar hjá RML og Þórarinn Leifsson bóndi í Keldudal í Skagafirði.
Fundurinn er öllum opinn og eru bændur sérstaklega hvattir til að mæta og hlýða á fróðleg erindi og taka þátt í umræðum.
Fagráð í nautgriparækt