Ársfundur Fagráðs á Hvanneyri 18. mars
06.03.2010
Ársfundur Fagráðs í nautgriparækt verður haldinn á Hvanneyri í Borgarfirði þann 18. mars n.k. frá kl. 13-17. Dagskrá fundarins er svohljóðandi:
1. Framtíðaráherslur í íslenskri nautgriparækt.
Magnús B. Jónsson og Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir, nautgriparæktarráðunautar Bændasamtaka Íslands.
2. Úrval út frá erfðamengi (genomic selection) í nautgriparækt .
Jón Viðar Jónmundsson, búfjárræktarráðunautur Bændasamtaka Íslands.
3. Erfðamengisval og framfarir í erfðavísindum
Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir, nautgriparæktarráðunautur og Jón Hallsteinn Hallsson, lektor við LbhÍ.
Óhætt er að fullyrða að nú um stundir á sér stað í heiminum meiri bylting í ræktun nautgripa, en sést hefur í marga áratugi. Í því ljósi er rétt að hvetja kúabændur eindregið til að mæta á fundinn og kynna sér þessi mál.