Arnar Árnason á Hranastöðum kjörinn formaður LK
01.04.2016
Arnar Árnason bóndi á Hranastöðum í Eyjafirði var nú laust fyrir hádegi kjörinn formaður Landssambands kúabænda. Hlaut hann 18 atkvæði en Jóhann Nikulásson, bóndi í Stóru-Hildisey 2 hlaut 15 atkvæði.
Arnar er 41 árs og hefur búið á Hranastöðum frá 2001. Hann er kvæntur Ástu Arnbjörgu Pétursdóttur og eiga þau þrjú börn. Arnar er búfræðingur frá Bændaskólanum á Hvanneyri árið 1994 og iðnaðartæknifræðingur af matvælasviði Tækniskóla Íslands árið 2000./BHB