Beint í efni

Arla lokar afurðastöð við Litlabelti

13.07.2017

Norður-evrópska afurðafélagið Arla hefur nú tilkynnt um lokun félagsins á afurðastöð þess við Litlabelti í Danmörku og þýðir þessi lokun að 66 starfsmenn missa vinnuna, en afurðastöðinn verður lokað árið 2019. Fram kemur í tilkynningu Arla að skýringin á lokuninni felist einfaldlega í því að afurðastöðin sé of óhagstæð í rekstri vegna smæðar sinnar og auk þess var komið að endurnýjunarþörf á framleiðsluaðstöðunni og þótt betra að sameina framleiðslu afurðastöðvarinnar við aðrar afurðastöðvar Arla í Danmörku.

Í þessari afurðastöð var fyrst og fremst framleiðsla á hvítmygluostum og Arla er einnig með slíka framleiðslu nú þegar í afurðastöð sinni í Troldhede og því hefur nú verið tekin ákvörðun um sameiningu þessara eininga, sem mun skila sér í bættri afkomu og þar með vera til hagsbóta fyrir eigendur félagsins, kúabændur í sjö mismunandi löndum, segir i tilkynningunni/SS.