Angus uppseldur
21.11.2012
Um þessar mundir er mikil eftirspurn eftir holdanautgripum á fæti í Evrópu og nú er svo komið að það fæst ekki einn einasti gripur keyptur lengur af Aberdeen Angus kyninu í Danmörku. Það eru lönd eins og Rússland, Portúgal, Þýskaland og Kasakstan sem hafa verið í miklum uppkaupum á lífdýrum undanfarnar vikur með þessari niðurstöðu.
Ástæðan fyrir því að Angus er svo vinsæll núna er hve vel þessi holdanaut henta í beitarbúskap á harðbýlli svæðum og t.d. mun betur en Simmental nautgripir, sem þó bera af í vaxtargetu meðal holdanautakynjanna í dag. Til samanburðar má geta þess að Aberdeen Angus dagsins í dag nær 320-360 kg sláturþunga við 12 til 13 mánaða aldur í dag en Simmental nær þessum sama sláturþunga við um 10 mánaða aldur.
Það má segja að nánast allar fæddar kvígur, sem eru ættbókarfærðar, megi selja á fæti, segir í fréttatilkynningu frá dönsku Aberdeen Angus samtökunum. En skýringuna á eftirspurninni í Danmörku telja samtökin felast í bæði gæðum danskra Angus nauta og ekki síður góðri sjúkdómastöðu landsins/SS.