Ánægjuleg þróun með hlutfall ungnautakjöts á Íslandi
01.07.2004
Á undanförum árum hefur hlutfall ungnautakjöts á markaði hérlendis aukist verulega (sjá mynd) og er nú svo komið að magn nautakjöts af ungum gripum er hátt í 70% af öllu nautgripakjöti á markaðinum og hlutfallið því orðið áþekkt eða hærra en gerist í nágrannalöndum okkar. Nokkuð hröð breyting hefur orðið á þessu hérlendis á síðustu árum og hefur hlutfall ungnautakjöts aukist um 9,3% á fjórum árum og á sama tíma hefur hlutfall kjöts af eldri gripum minnkað um 14,9%.