Ályktun stjórnar LK vegna reglna um merkingar gripa
28.11.2011
Stjórn Landssambands kúabænda hefur samþykkt svofellda ályktun vegna breytinga á reglugerð um merkingar nautgripa:
Þann 1. nóvember sl. tóku gildi breytingar á reglum um merkingar nautgripa, reglugerð 968/2011. Reglugerðin var sett um miðjan október og kynnt af Matvælastofnun á einum fundi, sem haldinn var sama dag og hún tók gildi. Fyrirvari breytinganna var því nánast enginn. Þótt nú sé langt liðið á nóvembermánuð er heldur ekki búið að gera nauðsynlegar breytingar á pöntunarkerfi fyrir plötumerki. Slík vinnubrögð Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytis eru með öllu óásættanleg.
F.h. stjórnar Landssambands kúabænda, Baldur Helgi Benjamínsson, framkvæmdastjóri.