Ályktun stjórnar LK um verðlagsmál mjólkur
26.01.2011
Á stjórnarfundi Landssambands kúabænda sem haldinn var í gær samþykkti stjórn svofellda ályktun um verðlagsmál:
Stjórn Landssambands kúabænda lýsir fullum stuðningi við fulltrúa bænda í Verðlagsnefnd búvara. Afar mikilvægt var að rjúfa langvarandi kyrrstöðu í verðlagningarmálum með sameiginlegri niðurstöðu nefndarinnar, þó æskilegt hefði verið að ná fram meiri leiðréttingu á mjólkurverði í samræmi við framreikning verðlagsgrundvallar. Í framhaldinu er nauðsynlegt að grannt verði fylgst með þróun aðfangaverðs og launa á almennum vinnumarkaði. Fulltrúar bænda í verðlagsnefnd fylgi því eftir af fullri einurð í störfum verðlagsnefndar á komandi mánuðum, að mjólkurverð til bænda taki mið af framangreindri þróun.