Um BÍ
Búgreinadeildir
Málaflokkar
Til baka
Um Alifuglabændur
Upplýsingar
Kolefnisspor
Til baka
Til baka
Um Hross BÍ
Fræðsla
FHB
Til baka
Um NautBÍ
Upplýsingar
LK
Til baka
Sauðfjárbændur
Upplýsingar
Til baka
Starfið
Stjórnsýsla
Til baka

Ályktun FKS um verðlagsmál mjólkur

27.04.2012

Félag kúabænda á Suðurlandi hefur í dag sent frá sér svofellda ályktun um verðlagsmál mjólkur:

 

 

„Félag kúabænda á Suðurlandi gerir þá kröfu til Verðlagsnefndar búvöru að leiðrétting á lágmarksverði mjólkur gangi fram hið fyrsta.  Síðasta breyting á verðlagningu mjólkur til bænda varð þann 1.júlí 2011 eða fyrir tæpum 10 mánuðum.

 

Frá þeim tíma hafa mjólkurframleiðendur burðast með aðfangahækkanir á rekstrarvörum og stórhækkanir á öllum flutningum. Það þyngir búrekstrinum verulega að bera hækkanir í marga mánuði á vörum  og þjónustu  og fá enga leiðréttingu á mjólkurverði  allan þennan tíma. Nefna má að launavísitala hefur hækkað frá júní 2011 til mars 2012 um 6,6% .

 

Félagið leggur áherslu á að leiðréttingar á lágmarksverði mjólkur komi örar fram eftir því sem  verðlagsgrundvöllur  kúabús mælir hverju sinni.

Þá skorar  félagið á Verðlagsnefnd  búvöru að taka til endurskoðunar verðlagsgrundvöll kúabús svo  hann endurspegli nákvæmari tölur úr rekstri kúabúa.

 

Félag kúabænda á Suðurlandi.